|
Viska Conráðs er hér ... |
|
BloggFréttasíða Conráðs - Alltaf á vaktinni !!! 17.3.2010Undirbúningur í gangi![]() Mynd: Veiðihúsið við Tungufljót apríl 2008 ![]() Mynd: Undirritaður við Flögubakka apríl 2008 (skítakuldi) ![]() Mynd: Það fraus í lykkjum apríl 2008 Það styttist all svakalega í fyrsta túr Conráðs en hann er í Tungufljót í Skaftártungu eftir rúmlega 20 daga. Undirritaður skellti sér í veiðiverslun í dag og lét skella nýjum flugulínum á nýja hjólið sitt og græjurnar verða svo vígðar í Tungufljóti. Einnig þarf að skella vöðlunum í viðgerð áður en sísonið byrjar. Eins gott að vera búinn með svona atriði áður en veiðin fer á fullt. Hnýtingar hafa nánast legið niðri í vetur en aðeins hefur verið framleitt, það stendur til að bæta úr því. Einnig er verið að versla nauðsynjar á netinu og mun undirritaður vígja magnaða græju í Tungufljóti, myndir og útskýringar koma eftir þann túr. Lítið hefur heyrst af Noregsdeild Conráðs enda er allt frosið í hel í Noregi. Góðar stundir. Nökkvi Svavarsson 23.2.2010Góugleði næstu helgi![]() Það styttist svo sannarlega í árlega Góugleði Conráðsmanna og maka þeirra. Stefnan er tekin austur fyrir fjall næsta laugardag og verður gist á Hótel Selfossi sem er við hæfi enda er hluti Stóru-Laxár sem rennur þarna framhjá í formi Ölfusár Það er kominn spenningur í mannskapinn enda jafnan mikil gleði þegar hópurinn kemur saman. Við ætllum einnig í vísindaferð í Ölvisholtið, fáum þar að fræðast um íslenska bjórframleiðslu og fáum líklega að smakka á snilldinni Við munum sakna Heiddans og frú þar sem þau eru nú að kanna veiðilendur Noregs. Góðar stundir. Nökkvi S 16.2.2010Rappala fær samkeppni
29.1.2010Orrinn fertugurTIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ORRI 20.1.2010Hvert skal fara í sumar ?![]() Jæja þá er komið plan á mannskapinn hvert skal haldið til veiða þetta árið, flestir segjast ætla að vera duglegir að nota Veiðikortið þetta árið og ætla ég svo sannarlega að vona það. Margir glæsilegir staðir þar að finna. En kíkjum á hvert Conráðsmenn ætla að fara og byrjum á Nökkva. Nökkvi: Apríl - Tungufljót http://www.svfr.is/?PageId=222 Maí - Elliðavatn þann 1. maí ekki spurning og svo bara út allan maí http://www.svfr.is/?PageId=213 Júní - Stóra-Laxá IV opnun http://www.svfr.is/?PageId=204 Júlí - Djúpavatn - fjölskylduferð http://www.leyfi.is/Veidisvaedinokkar/Lausirdagar/8 Ágúst - Vonandi Veiðivötn og svo er það túr ársins Láxá í Aðaldal Nessvæði http://www.svfr.is/?PageId=206 September - Stóra-Laxá I-II aðalfundur Conrðáðs http://www.svfr.is/?PageId=202 Svo ætla ég að vera duglegri á Þingvöllum. Kv. Nökkvi S Sigþór:Tungufljót ?? Elliðaár Korpu Norðurá Langadalsá Ytri Rangá Hróarslæk Stóru Laxá (Dalirnir í uppnámi) Ekki allt frágengið Kv, SigþórJörgen: Kominn með Conráðstúrana 3 og Elliðaárnar og Veiðivötn. Svo verður farið í Þórisvatnið um leið og opnar . Annað er ekki komið og veit ekki hvað eða hvort það verður meira Kv, DaddiMáni: Tungufljót Hróarslæk Langadalsá Laxá í Aðaldal Stóru Laxá. Kv, Máni16.1.2010Nýtt ár, meiri veiði :)Menn hafa verið mjög slakir undanfarið en engu að síður er útrásin í fullum gangi og Conráð er kominn til Noregs enda Heiddinn að kanna hvort eitthvað sé þar að hafa eða hvort þetta séu nú bara allt gróu sögur. Heiddinn á vafalaust eftir að senda okkur magnaðar veiðisögur frá "frændum" okkar í Noregi ásamt uppskriftum að nýjum Norskum flugum sem gætu komið að einhverju gagni hér á klakanum. Það styttist í að sísonið 2010 hefjist...... bara nokkrar vikur og við farnir að bóna línur og hnýta flugur, verður ekki mikið betra.... fokk æs seiv og fokk kreppa... veiðum til að gleyma :) Kv. Niðurfallið 15.1.2010Dráttur dagsins !!!!![]() Nú styttist í Góugleði Conráðsmanna 2010. Þetta árið verður hún haldin hjá Formanni á Selfossi. Búið er að græja hótel fyrir mannskapinn og dagskrá er langt komin. Þá er áætlað að fara í Tungufljótið í vor og stefnan er að taka nokkur poker chips með sér til að stytta okkur stundir ef veður reynist óhagstætt. Sem sagt allt að fara í gang enn eitt árið í veiðinni !!!! Kveðja, Þórir Flettingar í dag: 7 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 72 Gestir í gær: 25 Samtals flettingar: 39668 Samtals gestir: 14870 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 05:29:19 |
Vafraðu umclockhere Tenglar
Eldra efni |