|
Heimili Conráðs |
||
|
02.03.2012 18:00Félagsheimili FluguhnýtaraSjáumst eldhress og kát. Kv. Nökkvi S Skrifað af Stjórnarmanni 13.01.2012 22:24SVFR - ekki þetta árið !![]() ![]() Okkar heimasvæði er Stóra-Laxá í Hreppum eins og sumir líklega vita en það svæði lét SVFR frá sér fyrir hádegi hérna um árið. Ný stjórn Conráðs kom saman í byrjun nýs árs og lagði á ráðin með hvert skyldi halda, Hítará, Laxá í Dölum, Fnjóská, Gljúfurá eeeehhhh NEI...., hmmmm, hvert eigum við að fara.... hvað með Stóru-Laxá í Hreppum ? Nú voru góð ráð dýr og jafnvel dýrari en mörg önnur ráð því Stóra hefur hækkað mikið. Síðasta sumar í Stóru var metsumar og tveir Conráðsmanna áttu því láni að fagna að vera við veiðar á svæði I-II um miðjan sept. og sáu gríðarlega mikið af laxi og eðlilega náðust nokkrir á land sem lögum samkvæmt var sleppt og sem betur fer er bara veitt þar á flugu :) Jæja, stjórn Conráðs komst loks að niðurstöðu og Stóra-Laxá I-II fær að njóta nærveru okkar í september næstkomandi og vonandi saknar hún okkar jafn mikið og við söknum hennar. Síðast kvaddi hún okkur með brosi úr Fjósahvammi, Stekkjarnefi, Kóngsbakka, Laxárholti, Bergsnös og bara út um allt. Hlökkum til að hitta þig aftur Stóra og ætlum rétt að vona að þú takir á móti okkur skælbrosandi. ![]() Veiðikveðjur til ykkar allra. F.h. Conráðs. Nökkvi Svavarsson Skrifað af Stjórnarmani 12.12.2011 11:59Aðalfundur 2012Fyrrverandi formaður mundar tvíhenduna í Bergsnös 2010 Stjórn Conráðs er í óða önn um þessar mundir að ganga frá veiðileyfi vegna aðalfundar árið 2012. Það er ljóst að Gljúfurá í Borgarfirði verður tekin út af lista Conráðsmanna en Stóra-Laxá I-II er efst á óskalista Conráðsmanna. Síðasta sumar var svo sannarlega gjöfult í Stóru og vonandi að næsta sumar verði ekki síðra. Nökkvi S Skrifað af Stjórnarmanni 18.11.2011 20:26Aðalfundur SVFR - kosningar![]() Stígur fram á sviðið ungur og mjög svo frambærilegur veiðimaður, Hörður "Mokveiðifélagsmaður" Hafsteinsson og stefnum við Conráðsmenn á að kjósa kappann. Conráðsmenn hafa heyrt að einn stjórnarmanna í SVFR hafi lítið sem ekkert mætt á stjórnarfundi en við seljum það ekki dýrara en við heyrðum !!! Góðar stundir. Nökkvi Svavarsson Skrifað af Stjórnarmanni
Flettingar í dag: 7 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 69 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 103613 Samtals gestir: 37908 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 10:05:03 |
Vafraðu umTenglar
Eldra efni
|