Heimili Conráðs







Flokkur: mblog

05.02.2011 15:06

Veiðiflugur.is - Dodda flugur

email


Ási Helga og Heimir Ingi í Veiðiflugum á Langholtsvegi.

Við Conráðsmenn kíktum við hjá Hilla og Oddnýju og fylgdumst með Heimi Inga hnýta "Dodda flugur" og þvílík fegurð.  Handbragðið hjá honum er algjörlega frábært.  Hann hnýtti meðal annars flugurnar Veiðivon, Laxablá, Chiquita og fleiri glæsilegar "Dodda flugur". Hilli og frú voru eðlilega með kaffi og köku á kantinum og eins og lög gera ráð fyrir fengum við magnaðar sögur frá Hilla. Við erum farnir að spá í hvort hann viti yfirleitt eitthvað um veiði, nei segi nú bara svona, Hilli er snillingur.  Þökkum Veiðiflugum fyrir frábæran laugardag, þeir eru komnir til að vera og rúmlega það.


15.01.2011 16:09

Hnýtingadagur hjá Tanaða Dana

Allt að gerast í flottustu fluguhnýtingadeild á Íslandi !!!!

Nökkvi kíkti við í Veiðiflugum í dag.


01.04.2010 14:25

1. apríl - Elliðavatn opið





Það var svo sannarlega vetrarlegt Elliðavatnið í dag, 99% frosið en samt voru 3 við veiðar þegar ég kom að vatninu kl. 14:00.  Þessir 3 voru við brúna en þar frís nánast aldrei en ég gat ekki séð að þeir hafi verið í fiski en eina lífið sem ég sá var í nokkrum fuglum og hestum sem urðu á vegi mínum.  Ég var með stöngina í skottinu en ákvað að bíða í einhverja daga í viðbót.  Það styttist hinsvegar hrikalega í Tungufljótið en þangað heldur hluti Conráðs 9. apríl næstkomandi en fréttir herma að þar hafi menn fengið 4 í dag sem er framar vonum enda gríðarmikið frost á svæðinu.  Enn og aftur til hamingju með daginn veiðmenn og konur nær og fjær.

Kv. Nökkvi S

28.08.2009 14:35

Conráð fékk heimsókn

Þar sem styttist í aðalfund Conráðs sem að þessu sinni verður í Gljúfurá í Borgarfirði þá hittist Conráð í gærkvöldi og fór yfir málin, dregið var um svæði og farið yfir allt sem skiptir máli.

Við fengum góða heimsókn frá Stefáni Halli árnefndarmanni í Gljúfurá en hann kynnti okkur fyrir ánni og sagði okkur hvar, hvernig og hversu marga laxa við munum veiða emoticon
Stefán veit greinilega hvað hann er að tala um þegar kemur að Gljúfurá og erum við í Conráð nokkuð vissir um að halda ekki annan Brók Bakk aðalfund eins og í fyrra, það er bara ekki séns og kemur ekki til mála.

Það verður spennandi að sjá hvað Múmíngengið gerir á fyrstu vakt, verða þeir vakandi þegar veiðimenn koma í hús, hvað gerir Gullmolagengið, setja þeir í enn einn birtinginn eða koma þeir með bikarlax.  Hvað með kappana á El Negro, þeir voru brattir í gær en verða þeir jafn brattir eftir fyrstu vakt.  Hrokinn og Niðurfallið byrja í gljúfrinu, verður það ferð til fjár eða bara brók bakk ?
Þetta kemur allt saman í ljós eftir rúma viku, spennan magnast.

Við sendum Stefáni okkar bestu kveðjur og þökku kærlega fyrir frábæra kynningu.

Kv. Nökkvi Svavarsson

30.07.2009 14:42

Formaður í Veiðivötnum






Formaður mættur í Veiðivötn, allt klárt, baukur á kantinum þannig að nú er bara að bíða eða kasta flugunni.......


Letingjar í Litlasjó


4 punda aumingi úr Grænavatni

Sigurbjörn með 2 stærstu úr Grænavatni, þessi hægra megin er 9 pund og með ljótari fiskum sem hafa sést hehehehe

17.06.2009 17:25

17. júní að sjálfsögðu á Þingvöllum

Conráð (Orrinn og Heiddinn) fór snemma á Þingvöll á þjóðhátíðardaginn og viti menn, Völlurinn heilsaði með stæl emoticon   15 bleikjur lágu og sú sem er á myndinni er tæp 5 pund, hún var crazy og reif út línuna alveg niður á undirlínu.  Flestar tóku þær Krókinn og Peacock með rauðu skotti.  Það var flott veður og aðrir veiðimenn sem Conráð hitti á svæðinu voru einnig í fínni bleikjuveiði.
Völlurinn er í topp formi þessa dagana en næsti túr Conráðs er í Austurá núna á föstudaginn og það er mikil tilhlökkun yfir þeim túr emoticon

13.06.2009 16:01

Varmá 13. júní 2009 = mengun


Formaður Conráðs var á ferðinni í dag með túrista frá frændum okkar í Svíþjóð og þar sem Formaður býr á Selfossi þá var ferðinni heitið í Hveragerði og lögum samkvæmt þarf að keyra yfir Varmá / Klórá og þá blasti við þessi líka svakalega fegurð.  Þetta er eitthvað fyrir neðan sundlaugina en ekki veit ég nákvæmlega hvar þetta er.  Ljóst er að þetta er ekki hárlitur úr einhverjum Selfoss hnakkanum en ekki vildi ég renna fyrir silung í þessu margrómaða vatnsfalli.  Vonumst til að SVFR fái upplýsingar um hver fjandinn er í gangi en þetta getur varla talist eðlilegt.  Þess skal getið að Conráð veiddi einu sinni í Varmá fyrir löngu síðan og tók þá ákvörðun að veiða þar aldrei aftur.  Á heimleið úr þeim túr var komið við í Elliðavatni til að hreinsa línur og annan búnað enda Varmáin algjörlega ógeðsleg á þeim tíma en við fengum flundru, regnbogasilung og að mig minnir einn urriða ásamt klósettpappír og fínerí.

Kv. Nökkvi S

04.06.2009 18:33

Þingvalla Brókbakk :(

Stjórnarmaður og Orrinn skelltu sér á Þingvöll í gær og ætlaði stjórnarmaður nú aldeilis að læra af Þingvallasérfræðingi Conráðs.  Vorum mættir kl. 21 í hornið við Arnarfell sem átti að vera magnaður og lítið sóttur staður.  Taumurinn var mældur, tvær stangarlengdir og nú átti sko að ná í bleikju í soðið.  Eftir tveggja tíma barning var ljóst að ekkert líf fyrir utan Himbrima og aðra fugla var í vatninu.  Það lægði all svaðalega kl. 23 og við sáum einn fisk vaka og ðatts it.  Veiddum til 24 án árangurs en áttum snilldar brókbakk móment.  Þingvellir verða heimsóttir fljótt aftur emoticon

Kv. Nökkvi S

11.05.2009 22:00

Hlíðarvatn 7-8. maí

Hlíðarvatnsdeild Conráðs brá sér í Hlíðarvatn í Selvogi (nema hvað) í síðustu viku og fengu líka svona afspyrnu ömurlegt veður.  Skítakuldi, rok sem blés úr öllum áttum.  Nokkrir pundarar lágu í valnum en svo fékk Heiddi þessa líka fínu bleikju um kvöldið og túrnum var reddað.  Daginn eftir var veðrið enn ömurlegra og enginn fiskur kom á land.  Samkvæmt veiðibókinni þá var búið að fylla 7 síður og greinilegt að Krókurinn hefur verið að gera fína lukku undanfarið.
Næsti viðkomustaður Conráðs verður Baugsstaðaós fimmtudaginn 14. maí

Kv. Nökkvi S

01.05.2009 20:00

1. maí - algjör snilld



Jæja..... dagurinn rann loksins upp og að sjálfsögðu fór ég uppá Elliðavatn, þó ekki eldsnemma í morgun eins og vanalega á þessum degi heldur kl. 17  Það var logn þegar ég kom og náttúran bauð uppá allt það besta, bleikja að vaka um allt, fuglarnir í söng stuði og vatnið beið eftir mann.  Ég byrjaði Bleikjutanga á litlum Peter Ross og skipti svo fljótlega um flugu, svo aftur og aftur og aftur en ekkert gekk.  Fiskurinn var útum allt en tökurnar voru svakalega grannar.  Þá setti ég undir grá flugu með gylltum kúluhaus og grítti út og labbaði svo í land og þá kom neglan sem ég hafði beðið eftir og þessi var sprækur, tók vel í og eftir smá stund slapp hann.  Ég var ákveðinn í að ná fyrsta fiskinum þetta árið og reyndi strax aftur og dró rösklega inn og bingó, hann var aftur á.  Ég landaði svo þessum 43 cm og tveggja punda urriða.  Hann er nokkuð horaður en var mjög sprækur.  Fór sáttur heim og vona að aðrir veiðimenn hafi verið jafn sáttir og ég.

Kv. Nökkvi S

26.04.2009 22:51

Vífó 26. apríl kl. 19:00

Skaust uppí Vífó í gær í þessu líka frábæra veðri.  Það var talsvert mikið af veiðimönnum og nokkrir þeirra höfðu fengið 2-3 bleikjur.  Ég fékk nokkrar tökur en þær voru svo svakalega grannar að ég hef ekki lent í öðru eins, líklega með of stórar flugur.  Menn voru að tala um 14-16 væri að virka en boxið mitt er alveg laust við þá flugustærð.  Bleikjan var aðeins að vaka og það er mikið nóg æti í gangi.  Bíð enn eftir fyrstu bleikjunni minni úr Vífó emoticon

Kveðja, Nökkvi S

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 69
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 103613
Samtals gestir: 37908
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 10:05:03






Vafraðu um

Elliðaárnar - vorveiði

atburður liðinn í

4 daga

Veiðivötn

eftir

2 mánuði

21 daga

Laxá í Aðaldal - Nesið maður...

eftir

3 mánuði

7 daga

Stóra-Laxá I-II - Aðalfundur Conráðs

eftir

4 mánuði

3 daga

Tenglar